Í Rangárþingi ytra eru tveir grunnskólar. Einn á Hellu sem er stærsti þéttbýliskjarninn í sveitarfélaginu og annar á Laugalandi þar sem einnig er leikskóli, íþróttahús og sundlaug.

Skólastefna Odda bs "Göngum glöð til verka" er aðgengileg hér.  

Hér má nálgast gjaldskrá Odda bs. sem nær yfir leikskóla og grunnskóla á svæðinu.

Grunnskólinn Hellu

Leitast er við að tengja saman nám og kennslu við það umhverfi og þann bakgrunn sem nemendur koma frá.  Slíkri samtengingu fylgir einnig mikil umfjöllun og fræðsla um umhverfismál.  Nemendur fá að kynnast nokkrum þáttum umhverfisfræðslunnar með beinum hætti (þ.e. með beinni þátttöku).  Má í því sambandi nefna útiskóla, skógrækt, hreinsunarátak og vettvangsferðir um heimabyggð og afrétt. 

Skólastjóri: Kristín Sigfúsdóttir
Netfang: kristins@grhella.is
Heimasíða: www.grhella.is

Grunnskólinn Laugalandi

Sérstaða Laugalandsskóla markast af staðsetningu skólans og því samfélagi sem hann er hluti af en einnig þeim hefðum og venjum sem skapast hafa innan skólans og móta áherslur í skólastarfi og stefnumörkun af hálfu sveitarfélaganna sem að honum standa. Loks er skólinn undir sama þaki og leikskólinn á staðnum og starfa skólarnir náið saman.

Laugalandsskóli er ART votttaður skóli: ART aðferð sem byggir á félagsfærni, sjálfstjórn og siðferði og miðar að því að draga úr erfiðri hegðun hjá börnum og ungu fólki, t.d. þeim sem greinst hafa með ýmis konar þroskaraskanir, ofvirkni og alvarlegar atferlistruflanir.

Skólastjóri: Jónas B. Magnússon
Netfang: laugholt@laugaland.is
Heimasíða: www.laugalandsskoli.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?