Oddviti setti fund og áður en gengið var til dagskrár greindu sveitarstjóri og oddviti frá nokkrum atriðum úr starfseminni
1.Endurskoðun skipurits Rangárþings ytra
1501008
Tillaga að nýju skipuriti
Lögð er fram tillaga að nýju skipurit fyrir Rangárþing ytra.
Tillagan samþykkt samhljóða með þeim ábendingum sem komu fram á fundinum og sveitarstjóra falið að taka til endurskoðunar ráðningarsamninga þeirra stjórnenda sem þetta snertir.
Tillagan samþykkt samhljóða með þeim ábendingum sem komu fram á fundinum og sveitarstjóra falið að taka til endurskoðunar ráðningarsamninga þeirra stjórnenda sem þetta snertir.
2.Fjarskiptamál í Rangárþingi ytra
1501007
Fjárhagsleg úttekt á fjarskiptamálum; ljósleiðari - frumhönnun og kostnaðarmat.
Tillaga um að ganga til samninga við Guðmund Daníelsson um frumhönnun og kostnaðarmat vegna ljósleiðaravæðingar í Rangárþingi ytra. Kostnaður færist sem eignfærð aðkeypt sérfræðiþjónusta (liður 3210) og yrði að hámarki 750 þúsund kr. auk vsk.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá samningi m.v. fyrirliggjandi forsendur.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá samningi m.v. fyrirliggjandi forsendur.
3.Fasteignir Rangárþings ytra - yfirlit janúar 2015
1412047
Heildaryfirlit um fasteignir Rangárþings ytra
Listi yfir hús, lóð og lendur í eigu Rangárþings ytra lagður fram. Byggðaráði falið að vinna tillögu að nýjum sölulista og leggja fyrir næsta sveitarstjórnarfund.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
4.Lúkning lóðarákvæðis vegna Gaddstaða
1501021
Frágangur á kaupsamningi lands
Samkomulag liggur fyrir um að uppfylla lóðarákvæði í kaupsamningi frá 1959 með því að afsala lóð nr. 48 við Gaddstaðaflatir til seljenda Gaddstaða. Ekki er þörf á sérstakri færslu í bókhaldi enda fara engar greiðslur milli aðila.
Samþykkt samhljóða að uppfylla samninginn með þessum hætti og sveitarstjóra falið að ganga frá viðeigandi skjölum.
Samþykkt samhljóða að uppfylla samninginn með þessum hætti og sveitarstjóra falið að ganga frá viðeigandi skjölum.
5.Framtíð Kapalkerfis
1412062
Ákvörðun um hvort halda eigi rekstri kapalkerfis áfram
Samþykkt samhljóða að leggja af gamla kapalkerfið á Hellu frá og með mánaðamótum febrúar/mars 2015. Sveitarstjóra falið að fylgja ákvörðun eftir og upplýsa notendur og benda á aðrar leiðir.
6.Samstarfssamningur um notkun seyru til landgræðslu
1412054
Til staðfestingar
Samstarfssamningurinn er staðfestur samhljóða. Kostnaður færist sem aðkeypt sérfræðiþjónusta (0911)
7.Endurskoðun reglugerða um fjármál sveitarfélaga
1412060
Drög send sveitarfélögum til umsagnar
Lagt fram til kynningar
8.Erindi frá fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar
1501009
Óskir um lagfæringar á aðstöðu
Tekið vel í málið og sveitarstjóra falið að ræða við nefndarmenn um útfærslu viðhaldsverkefnisins. Kostnaður færist á fjallskilasjóð Rangárvallaafréttar (13211).
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
9.Erindi um þáttagerð "Að sunnan"
1501010
Tilboð um sjónvarpsþáttagerð úr héraði
Lagt er til að taka tilboði sjónvarpsstöðvarinnar N4 um að taka þátt í verkefninu, en kostnaður við það er 500.000 kr. Alls verða gerðir 24 hálftímalangir þættir fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi sem verða þátttakendur í verkefninu. Atvinnu- og menningarmálanefnd verði tengiliður verkefnisins í samvinnu við sveitarstjóra. Kostnaður færist á kynningarmál (2153).
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
10.Rangárvalladeild Hestamannafélagsins Geysis
1412050
Ósk um styrk/samning vegna æskulýðsstarfs
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til frekari úrvinnslu hjá Íþrótta- og tómstundanefnd. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að vinna að lagfæringu reiðvega í samráði við hlutaðeigandi.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
11.Goðasteinn - tilnefning í ritstjórn
1501014
Tilnefna þarf varamann í ritnefnd Goðasteins
Málinu vísað til héraðsnefndar sem skipar í ritstjórn Goðasteins.
12.Framlenging samstarfssamnings
1501011
Markaðssstofa Suðurlands óskar eftir framlengingu
Lagt til að fylgja fordæmi Árborgar sem er stærsta sveitarfélagið í þessu samstarfi og samþykkja framlengingu á samningnum til eins árs og 2,7% hækkun á framlagi pr. íbúa. Jafnframt verði óskað eftir að fulltrúar Markaðsstofunnar komi og kynni starfsemina og árangur hennar fyrir sveitarstjórn við fyrsta tækifæri. Kostnaður færist á kynningarmál (2153)
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
13.Þjónustukort Rangárþings og Mýrdals
1501003
Þátttaka og tilnefning tengiliðs
Tillaga um að taka þátt í samstarfi um þjónustukort áfram eins og verið hefur. Kostnaður færist á kynningarmál (2153). Vísað á Atvinnu- og menningarmálanefnd sem tengilið.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
14.Tilnefning fulltrúa í ráðgjafanefnd
1412051
Umhverfisstofnun - Friðland að fjallabaki
Lagt til að Haraldur Eiríksson verði fulltrúi Rangárþings ytra í ráðgjafanefndinni.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
15.Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77
1411013
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi áform um landskipti. Bókun fundar Skipulagsnefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi áform um landskipti.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áform lóðarhafa. Bókun fundar Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áform lóðarhafa.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd leggur til að sveitarfélögin þrjú sem stóðu að gerð rammaskipulags fyrir Suðurhálendið, standi sameiginlega að umsögn um fyrirliggjandi tillögu að landsskipulagsstefnu.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn skipi 2 fulltrúa til að vinna að tillögu að umsögn. Kynningarfundur á vegum Skipulagsstofnunar er áformaður í lok janúarmánaðar. Fulltrúar sveitarfélaganna leggi drög að umsögn fyrir næsta fund skipulagsnefndar, sem áætlaður er þann 9. febrúar nk. Bókun fundar Skipulagsnefnd leggur til að sveitarfélögin þrjú sem stóðu að gerð rammaskipulags fyrir Suðurhálendið, standi sameiginlega að umsögn um fyrirliggjandi tillögu að landsskipulagsstefnu.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn skipi 2 fulltrúa til að vinna að tillögu að umsögn. Kynningarfundur á vegum Skipulagsstofnunar er áformaður í lok janúarmánaðar. Fulltrúar sveitarfélaganna leggi drög að umsögn fyrir næsta fund skipulagsnefndar, sem áætlaður er þann 9. febrúar nk.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða og skipar Þorgils Torfa Jónsson og Yngva Karl Jónsson í teymi við tillögugerðina. Rétt er að benda á að fundur skipulagsnefndar verður haldinn 5. febrúar n.k. -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd telur að vel hafi verið staðið að kynningu og undirbúningi samkeppninnar og vinningstillagan lýsi vel þeim áherslum sem sveitarfélagið hefur sett fram.
Nefndin telur að áfram þurfi að vinna að því góða verki sem er hafið og hugað verði að undirbúningi deiliskipulags fyrir Landmannalaugar. Bókun fundar Skipulagsnefnd telur að vel hafi verið staðið að kynningu og undirbúningi samkeppninnar og vinningstillagan lýsi vel þeim áherslum sem sveitarfélagið hefur sett fram.
Nefndin telur að áfram þurfi að vinna að því góða verki sem er hafið og hugað verði að undirbúningi deiliskipulags fyrir Landmannalaugar.
Sveitarstjórn tekur samhljóða undir bókun skipulagsnefndar -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd telur að fram komnar ábendingar Skipulagsstofnunar varðandi stærð grannsvæðis séu þarflausar þar sem gerð sé grein fyrir grannsvæði í samræmi við önnur grannsvæði í gildandi aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Brugðist hefur verið við öðrum ábendingum Skipulagsstofnunar.
Engar þekktar fornleifar eru innan þess svæðis sem breytingin tekur til.
Ábendingar nærliggjandi landeiganda varðandi fuglalíf og lífríki á bökkum Rangár, gæludýrahald, gamlar leiðir ásamt hættu á mengun vill Skipulagsnefnd minna á að skv. lögum er óheimilt að loka gömlum þjóðleiðum og að á skipulagsuppdrætti væntanlegs deiliskipulags komi fram að ekki verði byggt nær Rangá en 50 m eins og reglugerð segi til um nema veitt verði sérstök undanþága sem Umhverfis- og auðlindaráðneytið veitir. Nefndin telur jafnframt að gæludýr á svæðinu muni ekki hafa teljandi áhrif á fuglalíf svæðisins.
Frárennslismál verða í samræmi við reglugerð um fráveitur.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra fyrir Jarlsstaði og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar meðferðar. Bókun fundar Skipulagsnefnd telur að fram komnar ábendingar Skipulagsstofnunar varðandi stærð grannsvæðis séu þarflausar þar sem gerð sé grein fyrir grannsvæði í samræmi við önnur grannsvæði í gildandi aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Brugðist hefur verið við öðrum ábendingum Skipulagsstofnunar.
Engar þekktar fornleifar eru innan þess svæðis sem breytingin tekur til.
Ábendingar nærliggjandi landeiganda varðandi fuglalíf og lífríki á bökkum Rangár, gæludýrahald, gamlar leiðir ásamt hættu á mengun vill Skipulagsnefnd minna á að skv. lögum er óheimilt að loka gömlum þjóðleiðum og að á skipulagsuppdrætti væntanlegs deiliskipulags komi fram að ekki verði byggt nær Rangá en 50 m eins og reglugerð segi til um nema veitt verði sérstök undanþága sem Umhverfis- og auðlindaráðneytið veitir. Nefndin telur jafnframt að gæludýr á svæðinu muni ekki hafa teljandi áhrif á fuglalíf svæðisins.
Frárennslismál verða í samræmi við reglugerð um fráveitur.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra fyrir Jarlsstaði og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar meðferðar.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Þeir sem svarað hafi útsendu bréfi hafi allir verið sammála því að breyta landnotkun lóða sinna úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði.
Þar sem lóðarhafar á meirihluta svæðisins hafa lýst sig jákvæða gagnvart breytingu á landnotkun leggur nefndin til að tilteknu svæði verði breytt úr frístundasvæði í aðalskipulagi yfir í landbúnaðarsvæði.
Í framhaldi af því felur nefndin skipulagsfulltrúa að kalla saman lóðarhafa á svæðinu þar sem lagðar verði línur um gerð deiliskipulags fyrir svæðið. Bókun fundar Þeir sem svarað hafi útsendu bréfi hafi allir verið sammála því að breyta landnotkun lóða sinna úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði.
Þar sem lóðarhafar á meirihluta svæðisins hafa lýst sig jákvæða gagnvart breytingu á landnotkun leggur nefndin til að tilteknu svæði verði breytt úr frístundasvæði í aðalskipulagi yfir í landbúnaðarsvæði.
Í framhaldi af því felur nefndin skipulagsfulltrúa að kalla saman lóðarhafa á svæðinu þar sem lagðar verði línur um gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Tillaga að bókun:
Skipulagsnefnd telur að komið hafi verið til móts við athugasemdir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir því tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu. Bókun fundar Skipulagsnefnd telur að komið hafi verið til móts við athugasemdir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir því tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd vill vekja athygli á að ekki er um að ræða lækjarfarveg á svæðinu heldur eingöngu vorleysingafarveg.
Skipulagsnefnd telur því að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Bókun fundar Skipulagsnefnd vill vekja athygli á að ekki er um að ræða lækjarfarveg á svæðinu heldur eingöngu vorleysingafarveg.
Skipulagsnefnd telur því að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd hafnar framkominni tillögu vegna þeirra athugasemda sem borist hafa frá nærliggjandi lóðarhöfum. Bókun fundar Skipulagsnefnd hafnar framkominni tillögu vegna þeirra athugasemda sem borist hafa frá nærliggjandi lóðarhöfum.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni skipulagsnefndar að vinna áfram að tillögunni. Bókun fundar Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni skipulagsnefndar að vinna áfram að tillögunni.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða. -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni skipulagsnefndar að vinna áfram að tillögunni. Bókun fundar Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni skipulagsnefndar að vinna áfram að tillögunni.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða. -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 77 Lagt fram til kynningar þar sem niðurstaða ráðuneytis hefur ekki borist fyrir fundinn. Bókun fundar Lagt fram til kynningar þar sem niðurstaða ráðuneytis hefur ekki borist fyrir fundinn.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða
16.HES - stjórnarfundur 161
1412066
Lagt fram til kynningar
17.Sorpstöð Rangárvallasýslu - stjórn 163
1412065
Lagt fram til kynningar
18.SASS - 488 stjórn
1412064
Lagt fram til kynningar
19.823 fundargerð Samband íslenskra sveitarfélaga
1412056
Lagt fram til kynningar
20.Félagsmálanefnd 21 fundur stjórnar
1501017
Fundargerð frá 10122014
Lagt fram til kynningar
21.21 fundur Almannavarna Árnessýslu
1501018
Sameiginlegur fundur Almannavarnarnefnda á Suðurlandi um flóðakort
Lagt fram til kynningar
22.Stjórnarfundur 5 Suðurlandsvegur 1-3 ehf
1412057
Lagt fram til kynningar
23.39.sambandsráðsfundur UMFÍ
1412052
Lagt fram til kynningar
24.Málefni nýrra íslendinga
1501022
Upplýsingar frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar
Fundargerð yfirlesin og samþykkt
Fundi slitið - kl. 17:15.