1.Aðalskipulag Rangárþings ytra
1503040
Fulltrúar frá skipulagsstofnun mæta til fundar.
Málinu frestað þar sem fulltrúar skipulagsstofnunar komust ekki til fundar.
2.Dagdvalir í Rangárþingi
1502072
Þörf fyrir dagvistun aldraðra í Rangárþingi
Sveitarstjóra verði falið að skipuleggja fund í samráði við samstarfssveitarfélög og þjónustuhóp aldraðra til að fjalla um þessi mikilvægu mál. Jafnframt verði óskað eftir kynningu frá SASS á nýrri skýrslu um stöðugreiningu hjúkrunarheimila á Suðurlandi.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
3.Umsókn um lóð - Dynskálar 20
1503020
Garðar Sigurðsson fyrir hönd Gassa Hellu ehf. sækir um byggingalóðina að Dynskálum 20
Sveitarstjórn samþykkir umsóknina og felur byggðarráði að kalla eftir frekari upplýsingum um byggingaráform til staðfestingar á næsta fundi ráðsins.
4.Frístundalóðir - viðmiðunarverð
1503036
Tillaga að viðmiðunarverði frístundalóða í eigu sveitarfélagsins
Lagt er til að viðmiðunarverð fyrir þær frístundalóðir í eigu sveitarfélagsins sem áætlanir eru um að selja á Gaddstaðaflötum og Merkihvoli sé tvískipt. Annars vegar fast verð kr. 750 þúsund á hverja lóð sem ætlað er að standa undir kostnaði við skipulag o.þ.h. Hins vegar landverð kr. 500 þúsund á hektara.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
5.Skipulagsmál vindmyllur - kynnisferð
1503030
Þátttaka fulltrúa Ry í kynnisferð til Skotlands 16-19 mars n.k.
Tillaga er um að oddviti sveitarstjórnar taki þátt í kynnisferðinni en fulltrúar verða frá sveitarfélögum í Árnessýslu og Ásahreppi auk fulltrúa frá Skipulagsstofnun. Kynning á skipulagi vindlunda er megintilgangur ferðarinnar. Kostnaður greiðist af lið 21011 (sveitarstjórn).
Samþykkt með 5 atkvæðum, tveir sitja hjá (MHG,SO)
Undirritaðar sitja hjá þar sem engin fundargögn fylgja og því ekki nógu skýrt hver tilgangur og hagur Rangárþings ytra er af þessari ferð.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Sigdís Oddsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum, tveir sitja hjá (MHG,SO)
Undirritaðar sitja hjá þar sem engin fundargögn fylgja og því ekki nógu skýrt hver tilgangur og hagur Rangárþings ytra er af þessari ferð.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Sigdís Oddsdóttir
6.Ósk um samstarf - EAB New Energy GmbH
1503026
Fyrir liggur erindi frá EAB, New Energy Europe, en félagið hefur áhuga á samstarfi við sveitarfélagið um græna orku og leggur fram hugmynd að viljayfirlýsingu (Memorandum of understanding)
Sveitarstjórn tekur jákvætt í frekari viðræður við fyrirtækið um mögulega sameiginlega viljayfirlýsingu (Memorandum of understanding) um samstarf um græna orku. Sveitarstjóra falið að afla frekari upplýsinga og undirbúa viðræðufund með fulltrúum EAB.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
7.Vinnureglur um upptökur af sveitarstjórnarfundum
1503037
Tillaga frá Á-lista
Fulltrúar Á-lista í sveitarstjórn óska eftir að sveitarstjóri komi í framkvæmd þeim tilmælum sveitarstjórnar frá síðasta kjörtímabili ( á 48. og 58. fundi hreppsnefndar) að koma með drög að vinnureglum um myndbandsupptökur á sveitarstjórnarfundum. Drög að reglum verði lögð fram í síðasta lagi fyrir næsta fund byggðarráðs í mars 2015.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
8.Til umsagnar frá Alþingi - 338 mál
1502086
Þingsályktun um seinkun klukkunnar og bjartari morgna.
Þingsályktun um seinkun klukkunnar og bjartari morgna.
Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi aukinnar birtu fyrir Íslendinga almennt en tekur ekki afstöðu til þess hvort betra sé að bjart sé árla morguns eða síðdegis.
Samþykkt algjörlega samhljóða
Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi aukinnar birtu fyrir Íslendinga almennt en tekur ekki afstöðu til þess hvort betra sé að bjart sé árla morguns eða síðdegis.
Samþykkt algjörlega samhljóða
9.Byggðarráð Rangárþings ytra - 8
1501009
Vísað er til afgreiðslu einstakra mála en fundargerð að öðru leyti staðfest
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 8 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram koma í umsögn þess til umhverfis- og samgöngunefndar 18.2.2015. Um er að ræða gjaldtöku í gegnum sveitarfélögin en eðlilegra væri að fjármagna þau verkefni, sem gjaldtökunni er ætlað að standa undir, með tekjum ríkisins vegna umhverfis- og auðlindaskatta. Sveitarstjórn leggst eindregið gegn samþykkt frumvarpsins.
Samþykkt samhljóða -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 8 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir þá hörðu gagnrýni sem fram kemur í vandaðri umsögn SASS um frumvarpsdrögin. Drögin eru ónothæfur grundvöllur fyrir almenningssamgöngur og farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni.
Samþykkt samhljóða
10.Íþrótta og tómstundanefnd 4 fundur
1502087
Fundargerð 25022015
10.1 Útnefning Íþróttamannseskju ársins í Rangárþingi ytra
Sveitarstjórn samþykkir tillögu Íþrótta- og tómstundanefndar að útnefna árlega Íþróttamanneskju Rangárþings ytra. Íþrótta- og tómstundanefnd er falið að halda utan um verkefnið og kostnaður færist á lið 0601 (Íþrótta- og tómstundanefnd).
Samþykkt samhljóða
10.2 Fleiri bekki við göngustíga
Sveitarstjórn samþykkir að beina því til eignaumsjónar að leita leiða til að fjölga bekkjum við göngustíga í sveitarfélaginu eins og kostur er. Eignaumsjón hafi samráð við formenn Íþrótta- og tómstundanefndar og Umhverfisnefndar.
Samþykkt samhljóða
Sveitarstjórn samþykkir tillögu Íþrótta- og tómstundanefndar að útnefna árlega Íþróttamanneskju Rangárþings ytra. Íþrótta- og tómstundanefnd er falið að halda utan um verkefnið og kostnaður færist á lið 0601 (Íþrótta- og tómstundanefnd).
Samþykkt samhljóða
10.2 Fleiri bekki við göngustíga
Sveitarstjórn samþykkir að beina því til eignaumsjónar að leita leiða til að fjölga bekkjum við göngustíga í sveitarfélaginu eins og kostur er. Eignaumsjón hafi samráð við formenn Íþrótta- og tómstundanefndar og Umhverfisnefndar.
Samþykkt samhljóða
11.Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 2
1501013
Fundargerðin er lögð fram til kynningar
12.Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 3
1502004
Fundargerðin er lögð fram til kynningar
13.Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 4
1502007
Vísað er til afgreiðslu einstakra liða en fundargerðin að öðru leyti til kynningar
14.Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 79
1502006
Vísað er til afgreiðslu einstakra liða en fundargerðin að öðru leyti staðfest
15.Samtök orkusveitarfélaga - 19 stjórnarfundur
1503014
Fundargerð 12012015
Lagt fram til kynningar
16.Lundur stjórnarfundur 10
1503015
Fundargerð 03032015
Lagt fram til kynningar
17.Samband Íslenskra Sveitarfélaga - 825 fundur
1503029
Fundargerð 16022015
Lagt fram til kynningar
18.237.fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
1503023
Fundargerð 26012015
Lagt fram til kynningar
19.Fundur 13 í Félags- og skólaþjónustu
1503027
Fundargerð 04022015
Lagt fram til kynningar
20.Vatnsveita 33. fundur stjórnar
1503034
Fundargerð frá 06032015
Lagt fram til kynningar
21.Skýrsla um starfsemi Félagsþjónustunnar
1503028
Yfirlitsskýrsla janúar 2015
Lagt fram til kynningar
22.Sóum minna - nýtum meira
1503038
Ráðstefna um lífrænan úrgang í Gunnarsholti 20 mars n.k.
Lagt fram til kynningar
23.Auðlindir - Skipulag - Atvinna
1503039
Ráðstefna um skipulagsmál á Hótel Stracta Hellu 25 mars n.k.
Formaður byggðarráðs leggur til að næsta fundi byggðarráðs verði frestað frá miðvikudegi 25 mars til fimmtudags 26 mars kl. 15:00 vegna ráðstefnunnar en mikilvægt er að góð þátttaka verði frá Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
24.Fyrirspurnir og erindi frá Á lista 11022015
1502049
Fyrirspurn um kostnað við gámavöll
Lagðir voru fram útreikningar Eignaumsjónar á stofn- og rekstrarkostnaði við Gámavöll í Þykkvabæ.
Til kynningar
Til kynningar
Fundi slitið - kl. 17:00.
Oddviti lagði til að við bættist liður 24. Fyrirspurnir frá Á-lista 11022015. Samþykkt samhljóða.
Áður en gengið var til formlegrar dagskrár fóru oddviti og sveitarstjóri yfir nokkur mál úr rekstri sveitarfélagsins.